Bocuse d´Or Kvöld

Viktor Örn Andrésson náði 3. sæti í keppninni Bocuse d’Or í janúar síðastliðnum.
Viktor er margverðlaunaður og var meðal annars matreiðslumaður ársins 2013 og matreiðslumaður norðurlandanna 2014.
Í tilefni þess höfum við fengið Viktor í samstarf þann 1. apríl á sérstöku Bocuse d’Or kvöldi, ásamt okkar frábæra teymi.
Saman hafa þeir Viktor og Siggi Helga, Bocuse d’Or fari 2015 og þjálfari Viktors í keppninni 2017, útbúið sérstakan matseðil úr hráefnum sem þeir voru að vinna með í keppninni á sínum tíma. Matseðillinn verður einungis framreiddur þetta eina kvöld.
00 Villisveppa hraun. Reyktur þorskur & sýrð agúrka. Ísbúa flögur.
01 Sjóurriði, ostrur, laukar & dill vinaigrette - 2015
02 Andalifur, grísaskankar, seljurót & blaðlaukur - 2014
03 Bocuse bronze „vegan“, Jarðskokkar, rauðrófur, epli & lauk gljái - 2017
04 Bocuse bronze „Bresse kjúklingur & humar“ Bresse kjúklingaleggir, andalifrar- og
jarðsveppa kúla, gulbeður, kartöflur, kjúklinga- og humargljái - 2017
05 Skyr, aðalbláber & kryddjurtir
Matseðill 12.900 kr.
Vínpörun 12.600 kr.