Jónas Kristjánsson

"Grillið á Hótel Sögu er samnefnari fyrir lúxus í veitingum. Þar fellur allt í einn og sama farveg glæsibrags, allt frá virðulegum húsakynnum og víðáttumiklu útsýni yfir í frábæra þjónustu og matreiðslu á heimsmælikvarða. Það er gott að vita af svona klassa hér á landi. í rauninni sprengir Grillið fimm stjörnu skalann, sem notaður hefur verið í þessum flokki greina um veitingahús *******... "

Hannes Hólmsteinn Gissurarson


,,Grillið er veitingastaður á efstu hæð Hótels Sögu.  Útsýnið þaðan er stórbrotið en það sést ekki aðeins yfir háskólasvæðið heldur alla Reykjavík.  Grillið hefur endurbætt markaðssetningu sína og er að mínu mati orðið eitt af þremur tígulegustu veitingahúsum landsins.  Grillið býður sérstaklega góða sjávarrétti úr fersku hráefni, auk þess sem íslenska bráðin (hreindýr og fjallalamb) er einstaklega ljúffeng.  Ég hef notið Grillsins mest þegar ég panta óvissumáltíð sem kokkurinn eldar eftir eigin höfði".