Astarbar

Astra Bar er fordrykkjabar Grillsins þar sem dreypa má á girnilegum kokteilum, miklu úrvali af léttvíni, kampavíni og jómfrúarkokteilum. Nafn barsins er dregið af latneska orðinu yfir stjörnur, astra, sem er í takt við hið upprunalega nafn Grillsins; Stjörnusalur - nær himninum verður vart komist hvað staðsetningu snertir. Yfirumsjón með Astra Bar er í höndum Hjartar Þorleifssonar, yfirþjóns Grillsins.