Um Grillið

Á áttundu hæð Hótels Sögu er Grillið, sem hefur í næstum hálfa öld verið tákn fullkominnar kvöldstundar. Ástæðan er einfaldlega sú að þar hefur þess ávallt verið gætt að gæðin séu í fyrirrúmi, hvort sem er í mat eða drykk, þjónustu eða umgjörð. Í Grillinu er dekrað við skynfærin, afbragðsréttir og eðalvín gæla við bragðlaukana og stórkostlegt útsýnið yfir borgina er sannkallað augnakonfekt.
Grillið er veitingastaður eins og þeir gerast bestir.

Starfsfólk Grillsins leggur sig alltaf fram um að veita hverjum viðskiptavini úrvalsþjónustu. Grillið getur tekið á móti stórum sem smáum hópum þar sem allt er lagt í að stundin verði hópnum ógleymanleg. Í Grillinu er einnig hægt að halda kynningar- og hádegisverðarfundi sem eru sérsniðnir að þörfum hvers hóps fyrir sig. 

Fagfólk í fremstu röð

Sigurður Helgason er yfirmatreiðslumaður Grillsins, hann hóf feril sinn á veitingahúsinu Perlunni árið 1998.  Hann var valinn matreiðslunemi ársins árið 1999 og útskrifaðist með hæstu einkunn árið 2001. Á árunum 1999 – 2001 starfaði Sigurður hjá Forseta embætti Íslands við veislu undirbúning undir sterkri leiðsögn Sturlu Birgissonar.

 
Að loknu námi hélt Sigurður til Lúxemborgar þar sem hann starfaði á Resturant Lea Linster´s  í  6 mánuði en sá veitingastaður skartar einni Michelin stjörnu. Árið 2004 tók Sigurður við sem yfir matreiðslumaður á Skólabrú og starfaði þar til ársins 2006. Á árunum 2006 - 2010 fór Sigurður erlendis þar sem hann starfaði sem einkakokkur á Englandi, Írlandi og New York við góðan orðstír.  

Árið 2010 snéri Sigurður aftur til starfa á Grillinu og árið 2011 tók hann við sem yfir matreiðslumaður Grillsins.  

Á undarfönum árum hefur Sigurður ferðast mikið til að skoða leiðandi veitingastaði og mótað þann matarstíl sem hann leggur upp með í matargerð sinni í dag. Hann hefur meðal annars heimsótt Capital Restaurant London (2 Michelin stjörnur), Foliage (1 Michelin stjarna), Tom Aikens restaurant (1 Michelin stjarna) og La Noisette (1 Michelin stjarna).

 

Árið 2004 – 2006 starfaði Sigurður með Íslenska kokka landsliðinu, þar sem það vann til verðlauna á Ólympíuleikunum í Þýskalandi í Scot Hot í Glasgow og Basel í Swiss.

Með Sigurði í eldhúsinu starfar Kári Þorsteinsson, Kári útskrifaðist frá Hótel Sögu árið 2007. Að námi loknu fór hann erlendis og hóf störf á hinum margfræga Texture í London þar sem að hann starfaði í eitt ár. Í framhaldinu starfaði Kári á nokkrum veitingastöðum svo sem Noma í Kaupmannahöfn, Kronen Gard Hotel í Sandnes í Noregi, Michelin stöðunum Le Manoir Aux Quat' Saisons, Hibiscus og The Capital. Að lokum snéri hann svo heim og tók við yfir matreiðslumanns stöðunni á Austur Steikhús.

Hróðmar Guðmundsson Eydal, yfirþjónn Grillsins, útskrifaðist frá Hótel Holti árið 2008. Hann hefur verið þjónn í Grillinu frá 2009.  Hróðmar er sannkallaður viskubrunnur þegar kemur að vínum og hefur einstakt lag á að velja saman mat og vín.

Opið alla daga nema sunnudaga og mánudaga frá kl. 18.00.
Eldhúsið lokar kl. 22:00

Gjafabréf í Grillinu er frábær gjöf til starfsmanna, fjölskyldu eða vina.
Til að panta gjafabréf hafið samband við söludeild okkar í síma 525-9920.

hópmynd 2