Hótel Saga byrjar 50 ára afmælisárið með íslenskum dögum á Grillinu þar sem matseðillinn samanstendur af réttum sem eru eingöngu unnir úr íslensku hráefni.
Íslensku dagarnir hefjast núna á þorranum, 20. janúar og
standa yfir til 20. febrúar.
Það á líklega hvergi eins vel við að halda íslenska daga en á Grillinu á Hótel Sögu. Allt hráefni kemur frá íslenskum framleiðendum vítt og breitt um landið, en á matseðlinum er m.a. að finna lax frá Rifósi, sólselju frá Lambhaga, fasana frá Hlíðarbergi, grísasíðu úr Laxárdal, hvítkál og rófur úr Vallanesi, ferskost frá Erpsstöðum, bláskel úr Steingrímsfirði og
nautahrygg úr Eyjafirði. Nánari upplýsingar