27.1.2012

Á toppnum í 50 ár

Hótel Saga var reist árið 1962 og fagnar því hálfrar aldar afmæli á þessu ári. Saga hótelsins og Grillsins hefur verið samofin allan þennan tíma og hefur Grillið jafnan verið talinn einn frægasti veitingastaður landsins. Þetta sögufræga og glæsilega hótel var á sínum tíma reist af íslenskum bændum og æ síðan hefur það tengst þeim sterkum böndum. Í tilefni íslensku daganna og afmælis Hótel Sögu var efnt til kynningar í Grillinu. Fjölmargir gestir nutu gómsætra veitinga sem kokkarnir í Grillinu reiddu fram og um leið útsýnisins á 8. Hæð Hótel Sögu.